Fréttasafn
Fréttir frá Árbæ
Sumarhátið
Í gær 2. júní var haldin sumarhátíð í leikskólanum Árbæ. Fyrir hádegi voru deildirnar með ýmsar uppákomur í garðinum. Snú, snú, krítar, sulluker, sápukúlur, andlitsmálun, þrautabrautir og málningu. Ekki spillti veðrið fyrir sól og blíða.
Eftir hádegi tók svo foreldrafélagið völdin og þá kom
Hjóladagur
27. maí var hjóladagur í Árbæ.
Allir skemmtu sér hið besta og var almenn ánægja með daginn.
Sumarhátíð í Árbæ
Miðvikudaginn 2. júní 2010 verður sumarhátíð í leikskólanum Árbæ. Sumarhátíðin er á vegum foreldrafélagsins.
Hátíðin byrjar kl. 14 og stendur til kl. 16. Foreldrar og aðrir aðstandendur eru velkomnir.
Boðið verður upp á snúða, kókómjólk, skyrdrykk og ís
2004 árgangurinn útskrifaður
Þriðjudaginn 11. maí útskrifuðust börnin sem fædd eru 2004 frá Árbæ. Athöfnin fór fram frá Tónlistarskólanum. Ýmislegt var gert til skemmtunar. Börnin halda flest áfram í leikskólanum, en fara svo öll í skóla í haust.
Lesa Meira >>Vorhátíð
Miðvikudaginn 2. júní 2010, verður vorhátíð í Árbæ.
Hátíðin byrjar kl. 14 og stendur til kl. 16. Foreldrar og aðrir aðstandendur eru velkomnir.
Tónlistarskóli
Í morgun fóru öll börn í Árbæ í gönguferð í Múla hús Tónlistarskóla Árnessýslu.
Lesa Meira >>Alli Nalli og tunglið
Miðvikudaginn 17. mars bauð foreldrafélag Árbæjar börnunum upp á leiksýningu. Sýningin heitir Alli Nalli og tunglið og er sett upp af Möguleikhúsinu.
Lesa Meira >>Tónlistarskóli
Börn fædd 2004 sem eru í leikskólanum Árbæ fóru í gær í tónlistarskólann á æfingu fyrir tónleika sem verða seinna í mánuðinum. Myndir frá æfingunni eru á vef Tónlistarskólans www.tonar.is
Lesa Meira >>Daglegt líf í leikskólanum
Daglegt líf í leikskólanum
.Athafnir daglegs lífs í leikskólanum mótast af andlegum og líkamlegum þörfum barnanna. Skipulag og ákveðnar tímasetningar skapa öryggiskennd.
Lesa Meira >>Húsnæði, útileiksvæði
Eins og áður er sagt er Árbær fjögurra deilda leikskóli sem er 639,8 fm að stærð. Húsið skiptist í fjórar deildir og miðrými. Hver deild hefur þrjú herbergi til umráða ásamt lítilli geymslu og snyrtingu barna. Í sitt hvorum enda hússins eru herbergi sem allar deildir skiptast á að nota. Annað þeirra er notað í listsköpun og hitt undir byggingarkubba og hlutverkaleik. Tveir mjög rúmgóðir fataklefar með salernum við útihurð eru sitt hvorum megin í húsinu. Í miðrými er eldhús, þvottahús, ræstigeymsla, kaffistofa, skrifstofa leikskólastjóra, salur, undirbúningsherbergi, viðtalsherbergi, salerni fyrir fatlaða og fataklefi og salerni starfsmanna.
Deildirnar eru nefndar eftir örnefnum í Fosslandi og heita þær Kringlumýri, Stekkjarlækur, Fosskot og Kotatún (Guðmundur Kristinsson. Ath.
Útileiksvæði Árbæjar snýr í suður og lóðin er umkringd trjáplöntum sem eiga eftir að skýla fyrir kuldastrekking sem kemur frá ánni þegar þeim vex ásmegin.
Vestan við húsið er gróðurhús sem við fluttum með okkur frá “gamla”Árbæ. Þar eru ræktaðar gulrætur, tómatar, paprikur, gúrkur, jarðarber o.fl. Einnig er safnkassi fyrir lífrænan úrgang og lítill reitur fyrir kartöflur.
Lesa Meira >>
Heilsuleikskóli
Heilsuleikskóli
Leikskólinn stefnir að því að tileinka sér viðmið heilsuleikskóla og hefur notað heilsubókina sem matstæki í þrjú ár.Í viðmiðum heilsuleikskóla stendur m.a.:
Hreyfing
Umhverfið þarf að bjóða upp á aðstöðu bæði úti og inni til að þjálfa jafnt gróf- og fínhreyfingar til að styrkja barnið líkamlega, andlega og félagslega. Markviss hreyfiþjálfun hefur einnig áhrif á málþroska og málskilning barna og þar með eykst félagsfærni og leikgleði sem eykur vináttubönd.
Næring
Stuðla skal að góðum matarvenjum og hollustu. Gæta skal þess að hafa fæðið sem fjölbreytilegast og nota sem minnst af fitu, sykri og salti. Vatn skal vera aðgengilegt fyrir börn og starfsmenn.
Efling á sjálfsvirðingu
Umhverfi og aðstæður eiga að veita barninu öryggiskennd með því að búa því hlýju, festu og takmarka óæskilegt álag. Ánægjulegt vinnuumhverfi eflir gagnkvæma virðingu, sjálfstraust, samkennd og samstöðu og samstarf allra í samfélagi heilsuleikskólans.
Umhverfisvernd
Leitast skal við að móta umhverfisstefnu. Gæta skal ábyrgðar og virðingar fyrir náttúrunni og umhverfinu.
(Anna Björg Aradóttir, Anna Lea Björnsdóttir, Guðlaug Sjöfn Jónsdóttir, Unnur Stefánsdóttir. 2002).
Lesa Meira >>
Innritun í grunnskóla skólaárið 2024-2025
Innritun barna sem eru fædd árið 2018 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2024 fer fram á Mín Árborg til 20. febrúar næstkomandi. Reglur um skólahverfi, innritun og umsóknir í grunnskóla Árborgar má finna hér fyrir neðan …
Haustþing leikskóla á Suðurlandi
Haustþing leikskóla á Suðurlandi verður haldið föstudaginn 29.september 2023. Leikskólar í Árborg eru lokaðir þann daginn.
Starfsmannafundur
Ágætu foreldrar/forráðamenn Við minnum á starfsmannafund sem verður 11.september í leikskólum Árborgar frá kl: 08:00 – 10:00 fh. Leikskólar Árborgar eru lokaðir á meðan. Leikskólinn opnar kl.10:00
Skipulagsdagur 18.ágúst
Skipulagsdagur leik- og grunnskóla í Árborg verður föstudaginn 18.ágúst. Þann dag verður leikskólinn lokaður.
Bjóðum sumarið velkomið
Söngur leikskólabarna í Heilsuleikskólanum Árbæ, verður á hólnum á leikskólalóðinni í Árbæ klukkan 10:00 fyrir hádegi föstudaginn 21. apríl 2023 Leikskólabörnin syngja nokkur vel valin vorljóð og bjóða þannig, vor og sumar velkomin í Árborg. Allir velkomnir
Sumarfrístund 2023
Við hvetjum foreldra barna sem eru að fara í grunnskóla í haust að kynna sér sumarfrístund og aðlögunarnámskeið frístundar. Meira um það inn á vef Árborgar; Sumarfrístund 2023 | Skráning | Fréttasafn | Sveitarfélagið Árborg (arborg.is)
Innritun í leikskóla Árborgar
Í lok mars 2023 hefst innritun í leikskóla Árborgar og stendur innritun fram í júní. Þetta þýðir að það fá ekki allir foreldrar boð um vistun fyrir börn sín á sama tíma Mikilvægt er að búið sé að skrá leikskólaumsóknir, hvort sem …
Starfsmannafundur
Miðvikudaginn 29.mars 2023 er starfsmannafundur í leikskólum Árborgar frá klukkan 8:00-10:00 fyrir hádegi. Árbær er lokaður frá klukkan 8:00-10:00 fyrir hádegi þann dag.
Skipulagsdagur 28.febrúar 2023
Heilsuleikskólinn Árbær verður lokaður 28. febrúar 2023, vegna skipulagsdags, samanber skóladagatal fyrir skólaárið 2022 til 2023.
Fræðsluefni fyrir foreldra frá talmeinafræðingum
Fræðsluefni frá Árborg til foreldra 🙂 https://www.arborg.is/stjornsysla/svid-og-deildir/fjolskyldusvid/fraedsluthjonusta/fraedsluefni/