Sumarhátíð í Árbæ

Miðvikudaginn 2. júní 2010 verður sumarhátíð í leikskólanum Árbæ.  Sumarhátíðin er á vegum foreldrafélagsins.
Hátíðin byrjar kl. 14 og stendur til kl. 16.  Foreldrar og aðrir aðstandendur eru velkomnir.
Boðið verður upp á snúða, kókómjólk, skyrdrykk og ís

Ýmis skemmtun verður í boði, andlitsmálun, sápukúlur, leikir, málning og fleira.  Einhverjar vinnuvélar verða á staðnum til að skoða.  Íþróttaálfurinn hefur boðað komu sína ásamt Sollu stirðu.  Einnig er von okkar að slökkvilið og/eða lögregla sjái sér fært að líta við.  Kannski verða einhverjar fleiri uppákomur en það verður auglýst þegar nær dregur.