Leikskólataskan

Það er markmið okkar hér í leikskólanum að börnunum líði sem best í leik og starfi. Til þess að þeim líði vel er nauðsynlegt að klæðnaður þeirra sé þægilegur og uppfylli þær kröfur að barninu sé hlýtt, það sé þurrt og fötin hefti það ekki við leik.

Útiföt þurfa að vera þægileg og helst þannig að barnið geti hjálpað sér sem mest sjálft.
Á suðurlandi er allra veðra von þannig að það er nauðsynlegt að hafa föt við hæfi í leikskólanum.
Í leikskóla eru börn að leika sér. Þau eru að föndra, borða, þvo sér og leika úti. Í þessum verkefnum geta fötin blotnað eða orðið skítug.   Þess vegna er mikilvægt að börnin séu með föt til skiptanna. Hér í Árbæ eru ekki til staðar föt til að lána börnunum en ef þau vantar föt hringjum við í foreldra og óskum eftir að þeir komi með föt. Þetta á bæði við um útiföt og aukaföt.

Hér er listi yfir það sem við teljum að nauðsynlegt sé að hafa í leikskólanum. Við skiptum þessum lista í tvennt.
Munið að merkja fötin vel, því við getum ekki þekkt hver á hvað þar sem í leikskólanum eru yfir 100 börn og mörg þeirra eiga eins föt.

 

Listi

Útiföt

  • Pollagalli
  • Kuldagalli
  • Hlý peysa
  • Hlý húfa
  • Ullarsokkar
  • 2 -3 pör af vettlingum
  • Kuldaskór/kuldastígvél yfir vetrartímann
  • Stígvél
  • Strigaskór yfir sumartíman
  • Létt húfa eða buff yfir sumartímann.
  • Hlýjar buxur undir pollagalla ef pollagallinn er ekki fóðraður

Aukaföt

  • 1-2 nærbuxur
  • 1 nærbolir
  • 2 pör af sokkum eða sokkabuxum
  • 1 buxur
  • 1 bolur
  • 1 peysa

Fylgist líka vel með hvað fer úr töskunni og munið eftir að taka blaut/óhrein föt með heim eftir hvern dag.