Heilsustefnan

Merki

3. maí 2007 fékk Árbær vottun sem Heilsuleikskóli. Síðan 1999 hefur starfsfólk við leikskólann notað Heilsubók Unnar Stefánsdóttur til að meta þroska og framfarir barnanna og þróað og dýpkað leikskólastarfið með heilsuna í huga. Bókin er nokkurs konar einstaklingsnámskrá hvers barns sem það fær að gjöf í lok leikskóladvalar sinnar.

Markmið heilsustefnunnar er að stuðla að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik. Öll börn ættu að alast upp við það að læra að virða heilsu sína og annarra sem ómetanleg verðmæti og grundvöll fyrir fullnægjandi lífi. Í heilsuleikskóla er heilsuefling höfð að leiðarljósi í einu og öllu. Markmið heilsustefnunnar er að venja börn strax í barnæsku við heilbrigða lífshætti með það í huga að þeir verði hluti af lífsstíl þeirra til framtíðar. Áhersluþættir heilsuleikskóla geta verið mismunandi eftir leikskólum en góð næring, góð hreyfing og listsköpun skal ávallt vera aðalsmerki þeirra.