Fréttasafn
Fréttir frá Árbæ
Jólagluggi 9. des 2010
Jólagluggi Árbæjar var opnaður 9. desember sl.
Boðið var í foreldrakaffi í leikskólanum Árbæ 9. desember sl.
þegar jólagluggi leikskólans var opnaður.
Opnun Jólagluggans er hluti af viðburðadagatali Árborgar.
Skipulagsdagur
Mánudaginn 3. janúar 2011 verður leikskólinn Árbær lokaður vegna skipulagsdags.
Þennan dag notum við til að afla okkur fróðleiks og skipuleggja starfið okkar.
Starfsfólk Árbæjar
Foreldrar athugið
Mánudaginn 6. desember nk. munu deildarstjórar í Árbæ afhenda foreldrum matsblöð vegna leikskólastarfsins í Árbæ.
Viðburðir í desember
Ýmsir viðburðir eru á dagskrá leikskólans í desember.
Við munum samt halda okkur innan skynsamlegra marka og munum
að starfið í desember snýst fyrst og fremst um að hafa frið og ró og njóta lífsins.
En hér að neðan eru þeir viðburðir sem ákveðnir hafa verið í desember. Við munum svo
bæta við þetta eftir því sem nær dregur.
Talkennsla
TALÞJÁLFUN HJÁ SVEITARFÉLAGINU ÁRBORG
Nú er að fara af stað talþjálfun hjá Sveitarfélaginu Árborg og fer hún fram í Vallaskóla. Talmeinafræðingur er Hólmfríður Árnadóttir og henni til aðstoðar er Margrét Kristjánsdóttir grunnskólakennari, sem er með sérstaka áherslu á kennslu yngribarna, málþroska og lestur.
Lesa Meira >>
Heilsubók
Nú er verið að vinna á fullu í heilsubókinni okkar. Þegar þeirri vinnu lýkur taka við foreldraviðtöl, en þau verða í nóvember.
Aðalfundur foreldrafélagsins
Þriðjudaginn 5. október kl. 20 verður aðalfundur foreldrarfélags Árbæjar haldinn í sal Árbæjar.
Dagskrá:
Kynningarfundir
Í september verða haldnir fundir á deildum þar sem vetrarstarfið verður kynnt.
Kotatún og Fosskot verða með fundi þegar aðlögun þar lýkur.
Fundir á öðrum deildum verða sem hér segir:
Haust í Árbæ
Nú er þetta heita og góða sumar brátt á enda og haustið að koma.
Það hefur oft einkennt haustin hér á Suðurlandi að þau eru blaut og stundum köld.
Þess vegna viljum við hvetja foreldra til að taka fram pollagallana og stígvélin, athuga hvort þetta er heilt og passar
Júlí, ágúst 2010
Í Árbæ er boðið upp á ávexti alla daga, bæði á morgnana og síðdegis. Hakkbollur og fiskbúðingur er búið til frá grunni í leikskólanum, allt brauð er bakað í leikskólanum, nema ristaða brauðið sem er í morgunmat á föstudögum.
Morgunmatur er til skiptis, hafragrautur, súrmjólk, Cheerios og Kornfleks. Lýsi er í boði alla morgna fyrir börn sem eru í morgunmat. Ef börn eru með vottorð vegna óþols eða ofnæmis þá er útbúinn sér matur fyrir þau.
Úthlutun úr sprotasjóði
Leikskólinn Árbær fékk úthlutað styrk úr Sprotasjóði, kr. 500.000.- vegna verkefnis skólaárið 2010 til 2011.
verkefnið ber heitið:
Skapar skólabragur velferð barna? Þróunarverkefni Árbæjar.
Markmið verkefnisins er að stuðla að heilbrigði og velferð barna í Árbæ.
Innritun í grunnskóla skólaárið 2024-2025
Innritun barna sem eru fædd árið 2018 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2024 fer fram á Mín Árborg til 20. febrúar næstkomandi. Reglur um skólahverfi, innritun og umsóknir í grunnskóla Árborgar má finna hér fyrir neðan …
Haustþing leikskóla á Suðurlandi
Haustþing leikskóla á Suðurlandi verður haldið föstudaginn 29.september 2023. Leikskólar í Árborg eru lokaðir þann daginn.
Starfsmannafundur
Ágætu foreldrar/forráðamenn Við minnum á starfsmannafund sem verður 11.september í leikskólum Árborgar frá kl: 08:00 – 10:00 fh. Leikskólar Árborgar eru lokaðir á meðan. Leikskólinn opnar kl.10:00
Skipulagsdagur 18.ágúst
Skipulagsdagur leik- og grunnskóla í Árborg verður föstudaginn 18.ágúst. Þann dag verður leikskólinn lokaður.
Bjóðum sumarið velkomið
Söngur leikskólabarna í Heilsuleikskólanum Árbæ, verður á hólnum á leikskólalóðinni í Árbæ klukkan 10:00 fyrir hádegi föstudaginn 21. apríl 2023 Leikskólabörnin syngja nokkur vel valin vorljóð og bjóða þannig, vor og sumar velkomin í Árborg. Allir velkomnir
Sumarfrístund 2023
Við hvetjum foreldra barna sem eru að fara í grunnskóla í haust að kynna sér sumarfrístund og aðlögunarnámskeið frístundar. Meira um það inn á vef Árborgar; Sumarfrístund 2023 | Skráning | Fréttasafn | Sveitarfélagið Árborg (arborg.is)
Innritun í leikskóla Árborgar
Í lok mars 2023 hefst innritun í leikskóla Árborgar og stendur innritun fram í júní. Þetta þýðir að það fá ekki allir foreldrar boð um vistun fyrir börn sín á sama tíma Mikilvægt er að búið sé að skrá leikskólaumsóknir, hvort sem …
Starfsmannafundur
Miðvikudaginn 29.mars 2023 er starfsmannafundur í leikskólum Árborgar frá klukkan 8:00-10:00 fyrir hádegi. Árbær er lokaður frá klukkan 8:00-10:00 fyrir hádegi þann dag.
Skipulagsdagur 28.febrúar 2023
Heilsuleikskólinn Árbær verður lokaður 28. febrúar 2023, vegna skipulagsdags, samanber skóladagatal fyrir skólaárið 2022 til 2023.
Fræðsluefni fyrir foreldra frá talmeinafræðingum
Fræðsluefni frá Árborg til foreldra 🙂 https://www.arborg.is/stjornsysla/svid-og-deildir/fjolskyldusvid/fraedsluthjonusta/fraedsluefni/