Fáni Heilsustefnunnar

Heilsuleikskólar sem fylgja Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur fá á næstu dögum afhendan
nýjan fána Heilsustefnunnar sem stjórn Samtaka Heilsuleikskóla hefur nýverið látið prenta út.

Fáninn er ílangur með nafni Unnar Stefánsdóttur, frumkvöðuls og höfundar Heilsustefnunnar,
ásamt upphafsári Heilsustefnunnar 1996.
Þegar rætt er um Heilsustefnuna eða vitnað í hana er mikilvægt að geta frumheimilda. Með
því að hafa þessar grunnupplýsingar ásamt merki Heilsustefnunnar á fánanum er ólíklegra að
stefnunni sé ruglað saman við aðrar stefnur sem komu á eftir Heilsustefnu Unnar
Stefánsdóttur.

Á mánudaginn var fóru þær Kristín Eiríksdóttir, formaður Samtaka Heilsuleikskóla, og Sigrún
Hulda Jónsdóttir, varaformaður, í kaffi á Kársnesbraut 99 í Kópavogi þar sem Unnur
Stefánsdóttir bjó. Tilgangur heimsóknarinnar var að afhenda fjölskyldu Unnar fánan og fóru
fram heitar umræður um málefni heilsuleikskólanna á meðan á henni stóð.
Við hjá Heilsuleikskólanum Árbæ fögnum nýja fánanum. Við þökkum Unni frábæra stefnu
sem hún eftirlét heilsuleikskólum á Íslandi.

Óvænt heimsókn í Kópavoginn