Leikskólinn Árbær fékk úthlutað styrk úr Sprotasjóði, kr. 500.000.- vegna verkefnis skólaárið 2010 til 2011.
verkefnið ber heitið:
Skapar skólabragur velferð barna? Þróunarverkefni Árbæjar.
Markmið verkefnisins er að stuðla að heilbrigði og velferð barna í Árbæ.
Verkefninu er ætlað að stuðla að líkamlegu og andlegu hreysti barnanna og skoða hvernig börn geta tekið þátt í því að byggja upp skilning hjá starfsfólki á þörfum barna.
Jafnframt því að ýta undir og styðja námsferli barna þar sem frumþörfum barnsins fyrir kærleik, frelsi, virðingu og gleði er mætt.