Piparkökumálun foreldrafélagsins

Piparkökumálun
Foreldrafélags Árbæjar

Kæru fjölskyldur

Laugardaginn 1. desember mun foreldrafélag Árbæjar standa fyrir piparkökumálun í leikskólanum. Fjörið hefst  klukkan 10:00 og lýkur um 12:00.

Foreldrafélagið sér um að útvega allt sem til þarf og því er bara um að gera að mæta með jólaskapið og njóta stundarinnar saman.

Hlökkum til að sjá sem flestar fjölskyldur.

Jólakveðja,

Foreldrafélagið

 

Þeir sem hafa áhuga á að aðstoða við undirbúninginn,

endilega hafið samband við Sæunni á saeunn@arborg.is