Opið Hús í Heilsuleikskólanum Árbæ í tilefni af 20 ára afmæli leikskólans að Fossvegi 1 á Selfossi

Opið hús í Heilsuleikskólanum Árbæ í tilefni af 20 ára afmæli leikskólans að Fossvegi 1 á Selfossi.

 

Árbær opnaði 14. júlí 2002 að Fossvegi 1 að því tilefni verður opið hús í leikskólanum frá klukkan 13:00 til 16:00

dagana 13., 14., 15. og 16. júní 2022.

Fyrstu árin hét leikskólinn Árbær, leikskólinn Árborg. Leikskólinn Árborg var stofnaður 31. mars 1995. Var hann sérstakur að því leyti að hann var samstarfsverkefni Selfossbæjar, Sandvíkurhrepps, Ölfushrepps, Gaulverjabæjarhrepps og Villingaholtshrepps og var því rekstraraðili byggðasamlag Árbæjar. Hann var staðsettur í gömlu íbúðarhúsi við Kirkjuveg sem seinna var rifið vegna nýrrar hótelbyggingar, Hótel Selfoss. Nafni leikskólans var breytt í mars 1999 þegar Sveitarfélagið Árborg varð til og í dag heitir leikskólinn, Heilsuleikskólinn Árbær.  Í gamla Árbæ (Árborg) voru 50 hálfsdagspláss, 25 börn f.h. og 25 e.h.

Þann 14. júlí 2002 var opnaður nýr fjagra deilda Árbær sem  rekinn  er  af sveitarfélaginu Árborg.  1. mars 2006 var bætt við bráðabirgðahúsnæði sem hýsir 2 deildir.  Við þessar breytingar varð Árbær  6 deilda. Í byrjun ársins 2020 var 7. deildinni bætt við Heilsuleikskólann Árbæ.

Heilsuleikskólinn Árbær starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur frá Vorsabæ í Gaulverjabæ.

Markmið stefnunnar er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi. Heilsubók barnsins er notuð til að mæla hvernig börnum gengur að ná markmiðum leikskólans. Bókin er einstaklingsnámskrá hvers barns sem það fær að gjöf í lok leikskóladvalar sinnar. Hún hefur að geyma útfærð skráningarblöð varðandi þroska og ýmsar upplýsingar um barnið. Skráningin gerir starfsfólki og foreldrum kleift að fylgjast með þroskaframvindu barnsins og er einnig tæki til að upplýsa foreldra um stöðu þess í leikskólanum. Skráð er m.a. heilsufar, hreyfifærni, úthald, hæð og þyngd, næring og svefn, lífsleikni og færni í listsköpun. Skráningin fer fram tvisvar sinnum á ári, haust og vor og foreldrum boðið í viðtal í kjölfarið.  

Einkunnarorð Árbæjar eru:    Virðing  –  Velferð  –  Vinátta