Heilsuleikskólinn Árbær er lokaður frá klukkan 12:00 föstudaginn 19. júní nk.

Eftirfarandi var bókað á fundi bæjarráðs 21. maí sl.:

1408010 – Tillaga vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi:
Með hliðsjón af hvatningu ríkisstjórnar Íslands til vinnuveitenda, jafnt á almennum vinnumarkaði sem og hjá ríki og sveitarfélögum til að gera starfsmönnum sínum kleift að taka þátt í skipulögðum hátíðarhöldum þann 19. júní nk. vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna samþykkir bæjarráð að starfsmönnum sveitarfélagins verði veitt frí eftir hádegi þann 19. júní, eins og kostur er.
Jafnframt samþykkir bæjarráð tillögu leikskólastjóra í Árborg um að halda hátíðarfund leikskólanna í Árborg þann 19. júní, þar sem rætt verði um hvernig hægt sé að auka lýðræði í leikskólum. Fundurinn verði öllum opinn og er starfsfólk sveitarfélagsins hvatt til að taka þátt í honum eða öðrum viðburðum sem í boði verða víðs vegar um land á þessum degi.