Aðalfundur Foreldrafélags – Foreldraráðs Árbæjar

 

Aðalfundur  Foreldrafélags – Foreldraráðs Árbæjar. Miðvikudaginn 22. október nk. klukkan 16:30 í sal Árbæjar  

Dagskrá aðalfundar

  • skýrsla um starfsemi félagsins
  • reikningar félagsins
  • kosning til stjórnar (framboð hafa borist )
  • breytingar á starfsreglum
  • ákvörðun félagsgjalda
  • önnur mál.

Kaffiveitingar

Bragi Bjarnason Menningar- og frístundafulltrúi Árborgar kynnir Hvatagreiðslur fyrir börn og ræðir um forvarnir.

Fyrirlestur frá Samtökum Heimilis og skóla (SAFT) um net og tækjanotkun barna.

Í fræðsluerindinu verður farið yfir netnotkun ungra barna og ýmis heilræði gefin um jákvæða og örugga  netnotkun og rafrænt uppeldi.

Fjallað verður um PEGI flokkunarkerfið sem segir til um hvaða aldri innihald leikja hæfir og efnisvísa þeirra; farið verður yfir öryggisstillingar á youtube og google, öryggisforrit og síur (parental control í appstore og playstore), hvað beri að gera ef börnin okkar lenda í óæskilegum samskiptum eða finna óviðeigandi efni á netinu, æskilegan skjátíma, farið verður yfir niðurstöður úr nýjustu SAFT rannsókninni 2013, auk þess sem bent verður á þroskandi leiki og forrit fyrir ung börn.

Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að koma á fundinn

 

Comments are closed.