Árbær – Virðing – Velferð- Vinátta


 Leikskólinn Árbær

Virðing – Velferð – Vinátta



Þriðja maí 2007 fékk Árbær vottun sem Heilsuleikskóli. Síðan 1999

hefur starfsfólk við leikskólann notað Heilsubók Unnar Stefánsdóttur

til að meta þroska og framfarir barnanna og þróað og dýpkað

leikskólastarfið með heilsuna í huga. Bókin er nokkurs konar

einstaklingsnámskrá hvers barns sem það fær að gjöf í lok

leikskóladvalar sinnar.

Eitt helsta markmið Árbæjar er að efla félagslega færni

einstaklingsins en samkvæmt Daniel Goleman sem skrifaði hina

þekktu bók Tilfinningargreind vegur það þyngra að vera félagslega

læs á umhverfi sitt en hin svokallaða greindarvísitala. Þetta fellur vel

að Heilsustefnunni, því að í viðmiðum heilsuskólanna kemur fram

að skilgreining á heilsu er sú að góð heilsa er andleg, líkamleg og

félagsleg vellíðan. Það er hægt að vera við góða heilsu þrátt fyrir

sjúkdóma eða fötlun.

Markmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barnanna

með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Dyggðakennsla eða lífsleikni nám barna í Árbæ birtist í öllu starfi

og stefnu leikskólans og felur í sér viðleitni til að dýpka skilning

barnsins á sjálfu sér. Lífsleikni barna er efld með því að örva

tilfinningaleikni þeirra í gegnum dagleg samskipti og á skipulagðan

hátt. Sé börnum skapað leikumhverfi þar sem sköpun og sjálfstæð

hugsun fær að njóta sín þá eflist leikni þeirra til að takast á við

umhverfið. Þegar börn læra að bera virðingu fyrir sjálfum sér,

styrkist sjálfstraust þeirra og þau verða hæfari í samskiptum við aðra.

Af því leiðir að börnin eiga auðveldara með að fara eftir þeim

reglum sem ríkja í samfélaginu og læra að bera virðingu fyrir

umhverfinu og margbreytileika einstaklingsins (Skólanámskrá

Árbæjar:9).

Leiðir að markmiðum Árbæjar:

Að tileinka sér undirstöðuatriði heilbrigðs lífs og lífsviðhorfa

   í samneyti við jafningja í leik og starfi.

Að vera umburðarlynd gagnvart ólíkum skoðunum,

    menningu og reynslu.

Að bera virðingu fyrir náttúrunni, dýrum og jurtum.

Að þekkja eigið sjálf, þróa með sér jákvæða sjálfsmynd og

   tilfinningu fyrir eigin getu