Þróunarverkefni Árbæjar:
Skapar skólabragur velferð barna?
Markmið verkefnisins er að stuðla að heilbrigði og velferð barna í
Árbæ. Menntun barna í Árbæ á að gefa börnunum tækifæri til að
þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og undirbúa þau til
að lifa í frjálsu þjóðfélagi í anda skilnings og friðar
Tilgangur verkefnisins er að efla líkamlega og andlega hreysti
barnanna. Einnig að skoða hvernig starfsfólk getur ýtt undir og stutt
námsferli barna þar sem frumþörfum barnsins fyrir kærleik, frelsi,
virðingu og gleði er mætt. Árbær er Heilsuleikskóli þar sem áhersla
er lögð á hreyfingu, hollt mataræði og listsköpun.
Með þátttöku í verkefninu breytir starfsfólk eða bætir eigin
starfsaðferðir til þess að ná markmiðum verkefnisins. Það bætir við
þekkingu sína og gefst kostur á að tengja fræðin við starfið. Með
virkri þátttöku og skapandi vinnu öðlast starfsfólk í Árbæ aukinn
skilning á kennslustarfi í leikskólum. Það styrkir það í að hrinda
nýjum hugmyndum af stað í eigin kennslu og gefur því færi á að
þróa hugmyndir um nám og kennslu á leikskólastiginu. Reynslan
sem starfsfólk öðlast við það að vinna verkefnið verður því hvati til
áframhaldandi sjálfsskoðunar og þróunar í starfi.
Markmið leikskólastarfs er að hlúa að börnum andlega,
vitsmunalega og líkamlega (umhyggja og umönnun). Þá er ekki
einungis átt við fallegt bros og hlý faðmlög heldur fremur tengsl og
samskipti barna og fullorðinna og hvernig þörfum barna er mætt. En
eitt aðalmarkmið leikskólastarfs er að hlú að þörfum barna, hugtakið
nær yfir þarfir eins og ást og öryggi, þörf fyrir aðra og vellíðan.
Jafnframt er hugtakið réttindi mikilvægt þegar fjallað er um
leikskóladvöl barna og að börn taki þátt í því að byggja upp skilning
okkar á þörfum þeirra.
Leiðin að markmiðum verkefnisins
Verkefnið skiptist í fimm áfanga:
1. Mat unnið af starfsfólki, foreldrum og börnum. Matið er
eftirfarandi: Mat unnið 28. apríl til 4. maí 2010 af starfsfólki.
Mat barna maí til júní 2010. Mat foreldra í september 2010.
2. Einu sinni í mánuði frá 1. september 2010 til 1. júní 2011 er
tekið myndband í 30 mín af barnahóp ( 2 eða fleiri, þarf ekki
að vera sömu börnin) á hverri deild þegar hópurinn er í leik.
Starfsmannahópurinn á deildinni horfir á
myndbandsupptökuna á deildarfundi sem haldinn er einu
sinni í mánuði og ræðir sín á milli um efni myndbandsins og
skráir hjá sér um ákveðna þætti
3. Mat 1. desember 2010. Matið er mat barna, foreldra og
starfsfólks. Aðferðin er spurningarlistar.
4. Vorið 2011, frá apríl til júní 2011 meta börn, foreldrar og
starfsfólk leikskólastarfið. Matið er borið saman við matið frá
haustinu 2010. Niðurstöður verkefnisins eru tilgreinda og
ályktun dregin af niðurstöðunum. Leitast er við að svara
rannsóknarspurningunni: Skapar skólabragur velferð barna.
5. Skýrsla sett á Internetið, heimasíðu Árbæjar.
Úr viðmiðum Heilsustefnunnar
Mæta þarf eftirfarandi frumþörfum mannsins í öllu
heilsuleikskóla-samfélaginu, bæði einstaklings- og hópbundið.
Kærleikurinn, það að tilheyra einhverjum
það að tilheyra einhverjumFrelsi, Það að hafa valkosti
Það að hafa valkostiVirðing, að vera mikilvægur - viðurkenndur
að vera mikilvægur - viðurkenndurGlaðværð, að upplifa gleði
, að upplifa gleði
