Sérkennsla í Árbć

Sérkennslan hefur verið í mótun í leikskólanum Árbæ og starfar samkvæmt lögum og aðalnámskrá leikskóla 2011 þar sem kemur fram að lýðræðislegt leikskólastarf byggist á jafnrétti, fjölbreytileika, samábyrgð, samstöðu og viðurkenningu fyrir ólíkum sjónarmiðum. Þar sem allir eiga rétt á að vera jafnir og þátttakendur í námi sínu og þroska.
   Í leiðarljósum um leikskóla kemur fram að starfsfólk leikskóla skuli grípa inni ef þurfa þykir til að öll börn njóti bernsku sinnar sem best miðað við þroska og þarfir hvers og eins.

Sérkennslustjóri sér um að skipuleggja sérkennsluna eftir þörfum hvers einstaklings. Gerðar eru einstaklingsnámskrár með öllum börnum sem eru í sérkennslu. Einnig fer fram skráning í dagbók eftir hvern tíma þar sem kemur fram hvað var gert í tímanum og hvernig það hafi gengið. Börnin fá bæði kennslu inni sérkennsluherbergi og inni á deildum eftir þörfum.

Sérkennslustjóri sér um að boða teymisfundi þar sem foreldrar mæta ásamt teyminu sem er í kringum viðkomandi barn og skrifar fundagerð sem er send til allra sem málið varðar. Sérkennslustjóri er í daglegum samskiptum við deildarstjóra og leikskólastjóra leikskólans til að byggja upp traust net um börnin innan leikskólans.