Stjórnarfundur foreldrafélags í leikskólanum Árbæ. Haldinn 4. Janúar á kaffistofu Árbæjar. Mættir eru: Katrín Guðjónsdóttir, Kristín Eiríksdóttir, Magnea Guðmundsdóttir, Sæunn Magnúsdóttir, Þorsteinn Ingólfsson. 1. Þorraferð elstu barna... Ákveðið að foreldrafélagið greiði rútu fyrir börnin í Húsið á Eyrarbakka. Tilboða verður leitað þegar ljóst er með dagsetningu og tíma. Áætlað í febrúar. 2. Leiksýning. Áætlum að hafa leiksýningu fyrir börnin i´mars. Skoðum hvað er í boði á ásættanlegu verði. Katrín skoðar leikhópinn Lotta Sæunn athugar með Möguleikhúsið Þorsteinn kannar leikfélag Selfoss Magnea kynnir sér „Leikhús í tösku“ (Hallveig Thorlacius) 3. Útskrift elstu barna. Útskriftarferð ráðgerð snemma í maí. Á útskriftinni sjálfri sér foreldrafélagið um útskriftargjöf. Verður líklega með sama sniði og síðustu ár. 4. Vorhátíð Ráðgerð í byrjun júní. 5. Næsti fundur félagsins Verður miðvikudaginn 8. febrúar. 6. Önnur mál: Leikskólastjóri og deildarstjórar eru að fara yfir skólanámsskrána (utan launaðs vinnutíma). Þær munu svo senda foreldraráði niðurstöður þeirrar vinnu til skoðunar og athugasemda. Kristín upplýsti okkur um að staða aðstoðarleikskólastjóra hefur verið lögð niður, en hann hefur ekki verið starfandi um einhvern tíma. Ekki var fleira rætt. Ritað 4.1.2012- Katrín Guðjónsdóttir Stjórnarfundur foreldrafélags Árbæjar 14-12-2011 Mættir: Kristín Eiríksdóttir, Katrín Guðjónsdóttir, Sæunn Magnúsdóttir, Magnea Guðmundsdóttir 1. Piparkökumálun. Magnið sem verslað var reyndist passlegt. Þátttaka fjölskyldna var góð. Þátttaka meðlima í foreldrafélagi mátti vera betri. Fengum gefins 15 plastbox frá Europris (500 g) og svo voru keypt 10 til viðbótar. Þetta voru blóm, hringir og hjörtu. Fengum gefins 10 pakka flórsykri frá Krónunni og svo voru keyptir 5 til viðbótar. Svo voru keypt ein flaska af hverjum matarlit lit gulur, rauður, grænn og blár. Keypt 3 l af djúsþykkni. Þetta dugði vel. Næst þarf að muna að kaupa poka fyrir fólk til að taka kökurnar með heim. 2. Mat foreldra á leikskólanum í maí 2011 (könnun). · Svörun var 45% · Upplifun foreldra á því hvernig barninu er sinnt fékk 4,7 (5 er fullt hús). · Aðlögun 4,6. · Samskipti og upplýsingar fá 4,6. · Helstu athugasemdir sem gerðar voru t.d. varðandi upplýsingar á heimasíðu. Sá sem hýsir heimasíðuna varð gjaldþrota, svo hún er í smá biðstöðu, virkar samt að vissu marki. Heimsíðan er hugsuð sem fréttabréf, fréttabréfið er ekki prentað út. · Foreldrar látnir vita ef eitthvað kemur fyrir barnið fékk 4,6. Í þessum lið er stefnt á að fá fullt hús (5). Þetta á að vera auðvelt að laga. · Samskipti við leikskólastjóra skorar einnig hátt, sem og samskipti við deildastjóra. · Kynning á nýjum starfsmönnum (til foreldra) má vera betri (fékk 3,7). Þetta skal bæta. · Kynning á skólanámskrá leikskólans, mætti kynna á ný t.d. í foreldraviðtali. Fleira varðandi þessa útkomu lagt fram til kynningar. 3. Þorsteinn og Kristín fóru á fund í undirbúningshópi 7. desember sl. endurskoðunar skólastefnu í Árborg. Í stuttu máli; ákveðið að kalla foreldraráð allra leikskóla og skólaráð allra skóla á fund í janúar. Þá á að ræða þessar spurningar „Hvar erum við stödd“, „Hvert er ferðinni heitið“, „Hvernig komumst við þangað“. Þetta var líka rætt á deildafundum innan Árbæjar, hvernig foreldraráð í Árbæ geti komið að endurskoðun skólanámsskrár og hvernig starfsmenn Árbæjar vinna að þessu. 4. Önnur mál: · Staðan á reikningi er góð. Um 100 þúsund kr. til. Mikill meirihluti fjölskylda greiðir gjaldið. · Eftir áramót er ráðgert; o Fundur með skólaráðum skóla í Árborg, o Leiksýning o Þorraferð elstu barna (foreldrafélagið greiði rútuna) o Vorhátíð. Fleira ekki rætt. Fundi slitið. Katrín Guðjónsdóttir-14-12-2011
Stjórnarfundur foreldrafélags í leikskólanum Árbæ.
Haldinn 3. nóvember á kaffistofu Árbæjar.
Mættir eru: Katrín Guðjónsdóttir, Magnea Guðmundsdóttir, Sæunn Magnúsdóttir, Þorsteinn Ingólfsson.
1. Gjald í foreldrafélagið komið í innheimtu...
Einhverjir hafa þegar greitt.
2. Kaupa kuldakrem á allar deildir.
Ákveðið að foreldrafélagið gæfi kuldakrem á allar deildir leikskólans. Fengum dósina á 1300 kr.
Magnea sér um kaupin. Sæunn ræðir við deildirnar um þetta. Sendur verði póstur til foreldra
vegna málsins og þeir beðnir að láta vita ef þeir vilja ekki að borið verði á þeirra börn.
3. Önnur mál
Piparkökumálun ákveðin 3. des. (laugard.) Stefnt á milli 10-12. Magnea athugi hve mikið af
piparkökum var keypt í fyrra og efni í glassúr. Magnea og Sæunn ætla að athuga með gefins
piparkökur/glassúr. Sæunn útbýr auglýsingu fyrir piparkökumálun.
Gjöf til barnanna frá „jólasveinunum“ á litlu jólum. Magnea athugar með tannbursta f. jólagjöf.
Ekki var fleira rætt.
Ritað 3-11-2011- Katrín Guðjónsdóttir
Stjórnarfundur foreldrafélags í leikskólanum Árbæ.
Haldinn 5. október á kaffistofu Árbæjar.
Mættir eru: Kristín Eiríksdóttir, Katrín Guðjónsdóttir, Sæunn Magnúsdóttir, Þorsteinn Ingólfsson.
1. Ákvörðun á árgjaldi í foreldrafélag..
Gjald ákveðið 1500 kr. auk 115 kr. þjónustugjalds til banka. Innheimt í heild 1615 kr. af hverju
heimili. Ekki sendur út seðill, einungis sett í heimabanka. Magnea sér um að innheimta.
Greiðsla gjaldsins er valfrjáls.
2. Bréf til Elfu Daggar Þórðardóttur, formanns framkvæmda og veitustjórnar og
Gunnars Egilssonar, formanns skipulags og byggingarnefndar vegna leikskólalóðarinnrar.
Ákveðið að senda bréfið eigi síðar en mánudaginn 10. Október n.k. Hluti stjórnar fer fyrst yfir
bréfið og gerir klárt. Sæunn skrifar undir og sendir bréfið fyrir hönd félagsins.
3. Önnur mál
Skipulagður vasaljósaleiðangur þann 4. Nóvember n.k. Skipulagt að útbúa auglýsingu fyrir það.
Rætt um piparkökumálun. Verkefnum varðandi það verður deilt út á næsta fundi.
Fjöldi í stjórn ræddur. Ættu að vera 6 en eru 7 þetta árið. Þar sem þetta æxlaðist á þennan hátt
var ákveðið að hafa fleiri í þetta skipti, það gæti komið sér vel.
Ekki var fleira rætt.
Ritað 5-10-2011- Katrín Guðjónsdóttir
Aðalfundur foreldrafélags leikskólans í leikskólanum Árbæ.
Haldinn 27. September kl 20:00 í sal Árbæjar.
1. Farið var yfir starfsárið 2010-2011. Hanna Rut, formaður félagsins síðustu tvö ár, kynnti síðastliðið starfsár.
Í október var haldinn aðalfundur
Í nóvember stóð foreldrafélagið fyrir málun piparkaka. Gjöld í foreldrafélag voru einnig innheimt.
Í desember voru litlu jólin foreldrafélagið greiddi fyrir og undirbjó „gjöfina“ frá jólasveinum . Gjöfin var tannbursti.
Í febrúar greiddi foreldrafélagið rútu vegna ferðar elstu barnanna í Húsið á Eyrarbakka.
Í mars stóð félagið fyrir því að Möguleikhúsið með leikritið Prumpuhóll kæmi í leikskólann. Einnig var sameiginlegur fyrirlestur með leiksólum Árborgar.
Í apríl stóð félagið fyrir myndatöku. Myndataka er áætluð annað hvert ár (næst 2013)
Í maí fóru elstu börn í útskriftarferð og foreldrafélag greiddi fyrir rútu. Útveguðu einnig og önnuðust útskriftargjöf til barnanna sem er (og hefur verið) birkiplanta frá Skógræktarfélagi Árnesinga. Einnig var haldin vorhátíð. Þar kom Brúðubíllinn. MS gaf börnunum kókómjólk.
2. Gjaldkeri félagsins fer yfir reikninga félagsins
Helstu útgjaldaliðir voru, jólagjöf, Leiksýningin Prumpuhóll, Brúðubíllinn á vorhátíð og rútuferðir. Einnig voru nokkrir útistandandi reikningar frá fyrra starfsári greiddir. Engir útistandandi reikningar nú í byrjun starfsárs 2011-2012. Staða félagsins er í upphafi starfsárs 29.850 kr.
3. Kosning nýrrar stjórnar.
Hanna Rut gefur ekki kost á sér til endurkjörs til formanns.
Eftirfarandi voru kosnir:
Formaður: Sæunn Magnúsdóttir (fulltrúi frá Stekkjalæk)
Varaformaður: Gunnar Már Kristjánsson (fulltrúi frá Kotatúni)
Gjaldkeri: Magnea Guðmundsdóttir (fulltrúi frá Kotatúni)
Ritari: Katrín Guðjónsdóttir (er fulltrúi frá Heiðasundi)
Meðstjórnandi: Jónína Eirný Sigurðardóttir (fulltrúi frá Kringlumýri)
Meðstjórnandi: Þorsteinn Ingólfsson (fulltrúi frá Fosskoti)
Meðstjórn andi: Renuka Perera (Bátatjörn)
Varamenn í stjórn eru:
Berglind Harðardóttir (Bátatjörn)
Íris Huld Guðmundsdóttir (Bátatjörn)
Sigríður Sigfúsdóttir (Heiðasund)
Hrannar Freyr Harðarson (Fosskot)
Thelma Karen Ottósdóttir (Kringlumýri)
Martha Rut Siguðardóttir (Stekkjalækur)
4. Breytingar á starfsreglum
Samþykkt var að 9. gr. starfreglna félagsins verði breytt og hljóði hér eftir:
„Tillögur til breytinga á starfsreglum verða að hafa borist stjórn skriflega í síðasta lagi þremur dögum fyrir auglýstan aðalfund. Breytingar á starfsreglum ná fram að ganga ef 2/3 fundarmanna greiða þeim atkvæði“.
5. Ákvörðun félagsgjalda.
Lagt til að félagsgjöld verði 1600 kr. á hvert heimili. Ekki endanlega ákveðið þar sem eftir er að athuga hvort hægt er að sleppa við seðilgjald (spurning hvort það verður inní þessum 1600 kr. eða hvort það verður þar að auki). Verður tekið upp á næsta stjórnarfundi.
6. Önnur mál
Ákveðið að stjórnar fundir verði fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði, kl 17:00, í Árbæ. Næsti fundur yrði því að óbreyttu miðvikudaginn 5. október n.k.
Ef stjórnarmaður kemst ekki á fundi skal hann kalla til varamann sinn.
Ritað 27-9-2011- Katrín Guðjónsdóttir
Foreldraráðsfundur 7. September 2011
1. Skólalóðin
Skólalóðin safnar of miklu vatni í rigningum og leysingum ásamt því að mikið er af sandi er á lóðinni. Til að laga þetta vandamál þarf að þökuleggja og leggja dren til að safna vatninu sem myndast á lóðinni. Var þetta mál rætt á síðasta skólaári og voru blikur á lofti um að sveitarfélagið ætlaði að bæta úr þessu og laga lóðina. Aftur á móti hefur það enn ekki verið gert og veltir foreldrafélagið fyrir sér hvort að það eigi að skrifa bréf til bæjaryfirvalda vegna þessa. Niðurstaðan var sú að formaður foreldrafélagsins ætlar að ræða við þá aðila hjá sveitafélaginu sem hafa með þetta mál að gera.
2. Aðalfundur
Ákveðið var að halda aðalfund þann 27. September klukkan 20:00 eftir að allar deildir leikskólans hafa haldið kynningarfundi fyrir foreldra. Á aðalfundinum verður nýtt foreldafélag stofnað með þeim foreldrum sem hafa boðið sig fram á kynningarfundi hverrar deildar. Ásamt því verða ýmis mál rædd er varða leikskólastarfið.
3. Staða félagsins
Á síðasta ári ákvað foreldrafélagið að safna ekki fjármagni heldur nýta það sem kemur inn fyrir börnin og heppnaðist það vel.
4. Innheimta gjalda
Ákveðið hefur verið að senda greiðsluseðla til foreldra í byrjun október.
5. Önnur mál
Kaffitíminn í leikskólanum hefur verið færður til klukkan 14:30 með góðum árangri. Börnin fá ávexti eftir lestur sem er á dagskrá eftir seinna kaffið og þau börn sem eru í vistun til klukkan 17:00 fá ávexti klukkan 16:30.
Allir starfsmenn leikskóland eru að fara til London í október og verður leikskólinn lokaður í tvo daga vegna þess. Við fögnum því að starfsmennirnir fari allir saman og vonum að ferðin verði ánægjuleg í alla staði.
Fundagerð
Foreldrafélag Leikskólans Árbæ
4. Maí 2011
Mættar voru: Hanna Rut, Stefanía, Kristín og Sæunn.
1. Útskriftarkrakkarnir fá aftur plöntu að gjöf frá foreldrafélaginu. Skógræktarfélag Árnesinga gefur félaginu plöntur
2. Vorferð elstu barna verður 24. Maí og farið verður frá leiksskólanum kl.10 með rútu. Forledrafélagið pantar og greiðir fyrir rútuna.
3. Dagsetning fyrir vorhátið var ákveðin, miðvikudaginn 1.júní. Keypt verður skemmtiatriði og athugað með að fá aftur slökkvuliðið í heimsókn og traktor frá Jötunvélum.
4. Umræða er um gjöf frá foreldrafélagi til leiksskólans.
5. Fulltrúi frá Sveitafélaginu kom til að skoða ástandið á skólalóðinni, teknar voru myndir og verður ástandið rætt hjá þeim.
6. Leiksskólinn mun aftur taka þátt í Vor í Árborg með listasýningu í Krónunni og svo ætla þau að opna dyr útí vorið.
7. Næsti fundur foreldraráðs verður miðvikudaginn 7.september
Stefanía Sif Williamsdóttir
Fundagerð
Fundur þann 6.Apríl 2011 kl.17:00 hjá foreldraráði leikskólans Árbæ
Mættar voru:
Hanna Rut, Kristín, Magnea, Sæunn, Ragnhildur og Stefanía
1. Myndatakan sem fór fram í sal skólans í vikunni gékk mjög vel. Hver deild mun fá hópmynd að gjöf frá ljósmyndaranum.
2. Leikritið Prumpuhóll var mjög gott, börnin skemmtu sér mjög vel, kannski í það lengsta þau yngstu voru farin að missa einbeitinguna svona rétt í lokin.
3. Fyrirlesturinn „Uppeldi sem virkar“ sem foreldrafélagið bauð uppá stóðst ekki væntingar.
4. Vorferð: Foreldraráð mun greiða aftur fyrir rútu í vorferðinni eins og hefur verið gert síðustu ár.
5. Umræða tekin varðandi útskiftagjafir fyrir elstu börnin, nokkar hugmyndir skoðaðar frekar en ekkert ákveðið enn.
6. Vorhátið: Dagsetning fyrir hátíðina verður ákveðin á næsta deildastjóra fundi, munum reyna að fá einhver stór tæki til að koma inná lóðina eins og fyrri ár.
7. Önnur mál:
· Foreldraráðið vill endilega benda foreldrum á vefsíðuna sjónarhóll.net en þar er að finna ýmsar upplýsingar varnadi kvíðaraskanir barna og unglinga.
· Fyrirspurn kom frá foreldri varðandi þríhjól í útileikföngum, þau eru s.s. ekki til. Forledraráð mun kanna kostnað við kaup á hjólum og hugsanlegar fjármögnunarleiðir.
· Ástand skólalóðar var rætt, en kvartanir hafa borist varðandi ástandið á lóðinni. Fulltrúi sjálfstæðismanna í Skipulags og byggingaráði bæjarins kom um daginn og tók myndir en höfum ekkert frétt síðan þá. Við í foreldraráði ætlum að fylgja því eftir og heyra í þeim hvort þetta sé komið í einhvern góðan farveg.
Fundur 2 mars 2011
Rætt var um hvort að foreldrafélagið eigi að eiga peninga til inná reikningum að hverju ári liðnu eða setja sér markmið að nýta hann allan á sem bestan hátt. Einnig var rætt hvort að foreldrafélagið ætti að gefa leikskólanum gjöf sem kæmi að góðum notum, rætt var um kvikmyndavél.
Berglind mun útbúa auglýsingu fyrir leikritið Prumpuhól sem sýnt verður í leikskólanum þann 16. Mars klukkan 10:30.
Foreldrafélög leikskóla Árborgar hittust á fundi, ekki komust fulltrúar frá öllum leikskólum. Ýmislegt var rætt á þeim fundi m.a.
§ Hugmyndir af fyrirlestir sem foreldrafélögin munu standa að og bjóða foreldum leikskólabarna á.
1. Heiðdís Gunnarsdóttir með fyrirlesturinn ,,Uppeldi sem virkar“ byggt á bók um uppeldi. Fyrirlesturinn væri á þeim nótunum um hún myndi ræða almennt um efni bókarinnar og mundu foreldrafélögin síðan koma sér saman um áhersluefni/kafla úr bókinni sem hún myndi fara dýpra ofaní.
2. Snorri R. Sigmarsson sálfræðingur með fyrirlesturinn ,,Kvíðaraskanir barna og unglinga“
§ Okkur leist betur á hugmynd nr. 2 þar sem það á við þjóðarsálina í dag, mikil óvissa og kvíði í bæði foreldrum og börnum.
Rætt var um vorhátíðina og þar var nefnt hvort ekki væri sniðugt að reyna að fá torfærubíl til að mæta á svæðið.
Einnig var rætt um hvort foreldrafélagið ætti að standa fyrir lambaferð. Misjafnt er það á milli leikskóla með hvaða hætti lambaferðirnar eru, hvort foreldrar komi börnum sínum á staðinn á eigin bíl, hvort ferðin er á leikskólatíma eða utan hans og hvort foreldrafélagið sjái um að útvega nesti eða ekki.
Einnig var rætt um (jóla)ljósaferð þar sem krakkarnir fara í skóg (Þrastaskóg) með vasaljós, þetta er gert þegar farið er að dimma og er sami háttur á og með lambaferðina, foreldrar keyra sjálfir og foreldrafélagið sér jafnvel um að útvega nesti, eða bara skipuleggur ferðina.
Rætt var um útskriftagjafir, þrjár hugmyndir voru ræddar:
1. Tré líkt og hefur verið hefð að Árborg gefi
2. Húfa með nafni barnsins á og merki leikskólans
3. Pennaveski með nafni barnsins á
Það sem stóð uppúr voru hugmyndir eitt og þrjú.
Liðin eru tvö ár frá því ljósmyndari kom síðast í leikskólann og var það rætt, niðurstaðan var sú að farið verður í að kanna verð fyrir bæði hópamyndir og einstaklingsmyndir. Einnig var rætt hvaða greiðslufyrirkomulag henti best til að greiða myndirnar og voru allir sammála því að best væri að foreldrarnir borguðu ljósmyndaranum.
Fundi slitið kl.18.00
Ritari Stefanía Sif Williamsdóttir
Fundagerð
Fundur þann 9.nóvember 2010 kl.17:00 hjá foreldraráði leikskólans Árbæ
Mættar voru:
Hanna Rut, Hildigunnur, Kristín og Stefanía
Sæunn boðaði forföll.
1. Hildigunnur byrjaði á að tilkynna að vegna breyttra aðstæðna hjá henni ætlar hún að segja sig úr foreldraráði. Okkur vantar því gjaldkera í hennar stað.
2. Hanna Rut mun taka að sér að fara í bankann til að fá senda út greiðsluseðla fyrir félagsgjöldunum. Kristín útbýr foreldralista fyrir hana.
3. Ákveðið var að piparköku skreytingardagurinn yrði laugardaginn 20.nóv frá 10:00-12:00. Hanna Rut hefur samband við Bónus og vonast til að fá gefins piparkökur, liti og djús. Ef eitthvað þarf að greiða fyrir þá gerir foreldraráð það, lögð er áhersla á að þetta verði í boði félagsins. Foreldrar þurfa ekki að greiða neitt og öll fjölskyldan er velkomin. Við verðum í salnum, ef mætingin verður mjög góð þá bætum við við einni deild. Ragnhildur og Berglind, getið þið tekið að ykkur að útbúa auglýsingar fyrir þennan dag til að hengja upp við hverja deild. Einnig þarf að senda tölvupóst á foreldra. Kristín ætlar að opna húsið kl.9.30 og mætum við í foreldraráðinu þá til að setja upp.
4. Litlu jólin verða með sama sniði og í fyrra, ætlum að hafa aftur tannbursta að gjöf og áhugi er fyrir því að bæta mandarínum við. Tökum ákvörðun um það á næsta fundi. Hanna Rut pantar 130 bursta á sama stað og í fyrra. Við eigum til nóg af pappír en þurfum að kaupa límband.
5. Okkur hefur verið boðið að kaupa jóla leiksýningu núna fyrir jólin, en ákváðum að halda okkur við eina sýningu að vori eins og hefur verið.
6. Næsti fundur verður 7.desember kl.17 og vonumst við til að við verðum fullmannaðar í tannburstainnpökkun.
Fundi slitið kl.17:45
Ritari Stefanía Sif Williamsdóttir
Fundargerð
Aðalfundur þann 5.október 2010 kl. 20:00 hjá foreldrafélagi leikskólans Árbæjar
Mættir voru:
Allir foreldrar boðaðir og var bara ágætis mæting.
1. Hanna Rut formaður fór yfir starfsreglur foreldrafélags og kynnti tillögur á breytingum á þeim.
2. Hildigunnur gjaldkeri fór yfir fjármál siðasta veturs.
Tvær athugasemdir komu varðandi starfsreglur.
a) Hvort æskilegt væri að festa það í reglur að binda tvo fulltrúa af hverri deild í foreldraráð ef börn væru að skipta um deild á milli ára.
b) Hvort við ættum ekki að reyna að eyða meira af sjóðnum, ástæðulaust að safna of miklu upp í sjóð.
3. Stjórn var kosin fyrir veturinn 2010-2011 og er hún svona.
Formaður: Hanna Rut Samúelsdóttir. Situr sitt annað ár.
Gjaldkeri: Hildigunnur Kristinsdóttir Situr sitt annað ár.
Ritari: Stefanía S Williamsd. Situr sitt annað ár.
Nýjir inn í stjórn:
Meðstjórnandi: Berglind Harðardóttir
Meðstjórnandi: Sæunn Magnúsdóttir
Varaformaður: Ragnhildur Guðrún Eggertsdóttir
4. Bragi Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi Árborgar kom og hélt fyrirlestur um forvarnir.
5. Í lokin var svo breytt fundartíma foreldraráðs og verða þeir í vetur fyrsta þriðjudag í mánuði kl.17.00
Fundi slitið kl.20.40
Ritari Stefanía Sif Williamsdóttir
Fundagerð
Fundur þann 28.september 2010 hjá foreldraráði leikskólans Árbæ.
Mættar voru:
Kristín leikskólastjóri, Hanna Rut, Hildigunnur og Stefanía Sif.
1. Farið var yfir starfsreglur foreldrafélags og lagðar voru fram nokkrar tillögur um breytingu. Þær verða lagðar fram til samþykkar fyrir aðalfund í október.
2. Rætt var árgjald foreldrafélags og ákveðið að hafa það óbreytt frá fyrra ári eða 1300 kr. per. fjölskyldu.
3. Kristín lagði fram skipurit fyrir starf foreldraráðs sem samþykkt var að vinna eftir í vetur.
4. Tillaga kom fram að byrja á piparkökumálun með börnum og foreldrum sem yrði þá í lok nóvember. Öllum leist vel á þá hugmynd og hún samþykkt.
5. Ákveðið var að aðalfundur foreldrafélags yrði haldinn þriðjudaginn 5.október kl.20 Við ætlum að reyna að ná til foreldra með því að auglýsa vel. Forvarnarfulltrúi Árborgar mun vera gestur á fundinum.
6. Samþykkt var að hafa fasta fundi foreldraráðs yfir veturinn. Þeir verða því fyrsta þriðjudag hvers mánaðar kl.16.15
Fundi slitið kl.17.20
Stefanía Sif var ritari.
Fundur foreldrafélags Árbæjar mánudaginn 10. maí, kl. 19:30
Mættar: Hildigunnur, Kristín, Hanna, Þórhildur og Guðbjörg.
1. Vorhátíð: Vorhátíð leikskólans verður miðvikudaginn 2. júní frá 14 – 16. Allt að verða klárt en þó eru nokkur atriði sem við ætlum að skipta á milli okkar.
a) Sirrý aðstoðarleikskólastjóri ætlar að hafa samband við slökkviliðið.
b) Hanna ætlar að hafa samband við Ræktunarsambandið og Jötunvélar.
c) Guðbjörg ætlar að hafa samband aftur við Kjörís og biðja um 200 stk. af Latabæjaríspinnum.
d) Stefanía ætlar að hafa samband við Latabæ og athuga hvort þeir hafi sjálfir hljóðkerfi meðferðis og hvort þeir gefi börnunum vatnsbrúsa.
e) Við fáum snúða frá Guðnabakarí og kókómjólk og jógúrtdrykki frá Mjólkurbúinu.
2. Útskrift: Gengið var frá birkiplöntum fyrir útskriftina.
3. Gjaldkerastaða: ákveðið að Hildigunnur taki við gjaldkerastöðu af Lucindu þar sem hún (Lucinda) er að flytja frá Selfossi.
4. Foreldrafélagið: rætt um að kynna þyrfti starfsemi foreldrafélagsins betur fyrir foreldrum í leiksólanum. Ákveðið var að fundargerðir fari inn á heimasíðu leikskólans.
Fundi slitið 20:30.
Guðbjörg G.
