Fréttir af okkur

Kæru foreldrar,

Nú er allt komið í sinn “rétta” farveg hér hjá okkur. Við erum byrjuð í hópastarfinu og er hver hópur að vinna á sinn hátt með fjölskylduna. Fjölskyldan er sem sagt þemað hjá okkur núna og svo fáum við sjá mismunandi útfærslur á því hvernig hægt er að vinna með fjölskylduna.

Dótadagurinn gekk alveg rosalega vel og við skemmtum okkur öll saman þennan dag. Börnin sýndu mikla vinsemd þegar þau leifðu öðrum að prufa sitt dót og einnig sýndu þau mikla þolinmæði þegar þau þruftu að skiptast á og þess háttar. Dagurinn var virkilega vel lukkaður og enn og aftur fengum við að verða vitni af gleðinni og þroskanum sem þessi dásamlegu börn búa yfir

Art-hóparnir eru að byrja aftur eftir smá pásu og nú klárar hópurinn sem að var fyrir áramót sitt efni og nýr hópur tekur við.

Kær kveðja
Bryndís Ósk  
Deildarstjóri


Kæru foreldrar,

Desember mánuður hefur verið heldur annasamur hjá okkur, á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Við erum búin að vera undirbúa jólin, halda jólaball, ná í jólatré, fara í kirkjuheimsókn, bjóða ykkur dásamlegu foreldrum okkar í kaffi, syngja jólalög, njóta þess að vera saman og njóta kærleikans og vináttunnar sem ríkir inni hjá okkur á Bátatjörn. Þetta hefur bara verið gaman og okkur starfsfólkinu á Bátatjörn langar til að þakka ykkur foreldrunum fyrir samvinnuna. Það var gaman að sjá hvað margir náðu að mæta í foreldrakaffið og eins á jólaballið, takk fyrir það 

Mig langar til að minna á að á mánudaginn 3. janúar 2011 er skipulagsdagur hjá okkur og því verður leikskólinn lokaður þann daginn.

Fyrir hönd starfsfólks Bátatjarnar sendi ég ykkur og fjöldskyldum ykkar okkar bestur óskir um gleðileg jól og farsældar á nýju ári. Við þökkum ykkur fyrir góð kynni á árinu sem er líða. Njótið hátíðanna og megi nýja árið færa ykkur gleði og gæfu

Jólakveðja
Bryndís Ósk
Deildarstjóri

 

                                   

 

Hæ hæ og hó hó

Undanfarnar vikur höfum við á Bátatjörn verið að vinna ýmis verkefni. Græni hópur gerði smá tilraun með pakka utan af morgunkorni. Ætlunin var að útbúa kúluspil en þegar vinnuferlið hófst þá sáum við fljótlega að þetta var aðeins of erfitt verkefni fyrir strákana og þess vegna var ákveðið að bíða eins með það og finna sér annað verkefni. Blái og rauði hópurinn hafa verið að vinna í listasmiðjunni eins og sá græni og hafa fengið tækifæri á að tjá sig með myndmáli. Öll börnin hafa farið í salinn en kannski ekki endilega á þeim tíma sem þau ættu að vera fara þar sem að við höfum verið að vinna með heilsubókina undanfarnar vikur. Göngutúrarnir hafa einnig verið á sínum stað og vekja alltaf mikla lukku  

Elstu börnin fóru í heimsókn í mjólkurbúið í síðustu viku og var sú heimsókn ótrúlega skemmtileg og fræðandi. Bangsadagurinn var svo haldin hátíðlegur í vikunni sem leið og héldum við þetta frábæra bangsapartý hér á Bátatjörn  Við erum svo lánsöm að hafa alltaf eitthvað skemmtilegt að gera í góðra vina hópi hér á Bátatjörn og ætlum okkur halda áfram að njóta þess.

Við hér á Bátatjörn erum svo heppin að hafa fengið kennaranema til okkar. Hún heitir Katla og ætlar að vera hjá okkur í vettvangsnámi næstu tvö árin. Með vettvangsnámi er átt við samfellda veru og nám kennaranema út í leikskólum. Í vettvangsnámi eru nemar að kynna sér leikskólastarfið í heild sinni ásamt starfsháttum á ákveðnum sviðum. Í vettvangsnámi fá nemar tækifæri til að tengja saman fræði og framkvæmd með því að prófa þá þekkingu og kunnáttu sem þeir hafa aflað sér í háskólanáminu. Við bjóðum Kötlu að sjálfsögðu velkomna til okkar og erum þakklát fyrir að fá hana inn í okkar frábæra hóp á Bátatjörn

Í sambandi við Art-ið þá höfum við Bryndísarnar tekið við af Önnu Hrund en hún verður okkur að sjálfsögðu innan handar þar sem að hún er Art-viskubrunnurinn okkar á Bátatjörn   Um leið og við tókum við þá færðust tímarnir til og eru núna á mánudögum og föstudögum.

Þangað til næst hafið það sem allra best



                                                                                                                                                                                            október 2010 

Kæru foreldrar,

Vikan hefur gengið vel hjá okkur. Við erum búin að vera vinna í hópastarfi þar sem við höldum áfram að vinna með litina og nú hafa haustlitirnir yfirhöndina. Okkur langar helst til að fara í gönguferðir á hverjum degi af því að það er svo yndislegt að ganga um nánasta umhverfi okkar og sjá alla þessa fegurð, haustið og litirnir úffff við verðum bara orðlaus. Einnig höfum við verið að vinna með formin og þeirri vinnu ætlum við að halda áfram í þessari viku. Það fóru allir í salinn í vikunni og skemmtum við okkur ótrúlega vel. Við erum að sjálfsgöðu öll afskaplega dugleg að leifa mömmu og/eða pabba að bursta tennurnar og við kennararnir erum svakalega ánægðar með snillingana okkar

Við gleymdum alveg að láta ykkur vita að við vorum með nema í síðustu viku. Hún heitir Katla og ætlar að vera með okkur af og til í vetur, ég lofa að láta ykkur vita næst áður en hún kemur og biðst innilegrar afsökunnar á þessu  

Þangað til næst hafið það sem allra best

 





                                                                                                                                                                                          september 2010
Kæru foreldrar,

Við erum búin að eiga frábæra viku hér í leikskólanum. Hópastarfið byrjaði á þriðjudaginn og fóru þá blái og græni hópur í hópastarf. Við fórum í litafræði í listakrók. Í litafræði lærum við um grunnlitina, um heita og kalda liti og um andsæður í litum. Við gerðum líka tilraunir með litum með því að blanda saman litum. Börnin fengu sjálf að velja sér liti til að blanda saman og í boði voru grunnlitirnir sem eru gulur, rauður og blár en einnig voru svartur og hvítur í boði og með þessum fimm litum getum við búið til alla liti í heiminum. Þetta fannst okkur mjög merkilegt og við ljómuðum af gleði þegar að blöndunin átti sér stað  Græni hópurinn vann líka með matarliti, vatn og glimmer og það var svakalega skemmtilegt ( árangurinn má sjá inni á deild). Þegar litið er til baka hefur vikan okkar verið rosalega góð og við hlökkum til að hittast aftur á mánudaginn.

Nú er aðeins farið að kólna úti og haustið farið að láta á sér kræla og því þurfum við að hafa góð útiföt Allir að muna eftir þykkri peysu, úlpu (kuldagall), vetlingum og húfu. Hér á heimasíðunni okkar undir Bátatjörn má nú finna dagskipulagið, endilega skoðið það vel svo að allir viti af því hvenær hópastund, hreyfing og Artið er 

 

Góða helgi allir saman

Bryndís Ósk




                                                                                                                                                                                           Maí 2010   

Vááá það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur að það hefur ekki einu sinni gefist tími til að skrifa smá fréttir
Elstu börnin hafa verið einstaklega dugleg í ferðum sínum um Árborg og það hefur eitthvað verkefni beðið þeirra í hverri viku. Yngri börnin okkar hafa einnig haft nóg að gera og hafa líka náð að njóta þess að “eiga” deildina út af fyrir sig þegar að 2/3 hluti barnanna á Bátatjörn er í burtu.

Maí mánuður er búinn að vera heldur betur fjörugur. Útskrift elstu barnanna var haldin í Tónlistarskólanum og þessi sömu börn fóru í útskriftarferð. Báðir þessir viðburðir gengu rosalega vel og voru allir sammála um þetta hefði verið afskaplega skemmtilegt og vel lukkað  

Í maí höfum við líka farið í skólaheimsóknir bæði í Vallaskóla og Sunnulækjarskóla. Við höfum fengið að fylgjast með verklegri kennslu eins og t.d. sundi. Þetta finnst krökkunum afar spennandi og gaman að fá að fylgjast með í þessum greinum.

Elstu börnin okkar tóku svo þátt í Vor í Árborg hátíðinni þar sem að þau ferðuðust milli staða og sungu fyrir íbúa og gesti sveitarfélagsins. Börnin höfðu mjög gaman af þessu og stóðu sig að sjálfsögðu með príði. Mig langar þó fyrir hönd okkar á Bátatjörn til að biðja ykkur kæru foreldrar afsökunnar á töfinni sem varð á börnunum þennan daginn. Öll börnin á Bátatjörn tóku þátt í að setja upp sýningu í Krónunni og vonum við að sem flestir hafi fengið að njóta.

Esltu börn fóru svo og tóku þátt í því að planta trjám í staðin fyrir þau tré sem við fengum um jólin. Við höfum sem sagt sett niður tré í staðin fyrir það sem við fengum um jólin

Við á Bátatjörn erum búin að vera að æfa leikrit sem við sýndum svo á leikskólanum núna fyrir helgi. Börnin voru alsæl með þetta og þau voru svo flott og skemmtileg að það er alveg á hreinu að þetta verður ekki síðasta sýningin okkar á Bátatjörn. Það sem að var svo skemmtilegt við þetta allt var ferlið, börnin hafa verið svo dugleg að undirbúa sýninguna og æfa sig að það hefur verið aðdáunarvert. Samhjálpin, vinsemdin og virðingin sem þau hafa sýnt hvert öðru hefur verið yndisleg og aðdáunarverð  

Við vorum einnig með hjóladag í maí sem heppnaðist vel og voru börnin afskaplega ánægð með þennan dag.

Núna er formlegu hópastrafi lokið og við tekur sumarstarfið með öllu því skemmtielga sem það hefur upp á að bjóða. Mig langar til að benda ykkur kæru foreldrar á að börnin þurfa að vera í góðum skóm þar sem að við erum mikið að fara í göngutúra og þá oft á þannig slóðir þar sem að þungir skór eða sandalar henta illa   

         Sumarkveðja Bryndís Ósk 




                                                                                                                                                                                                 19.apríl 2010      

Kæru foreldrar,

Nú er kominn tími til að senda út smá fréttir af okkur. Það er búið að vera vor í lofti og vorið þýðir fyrir okkur mikið að gera og mikið um að vera.

Elstu börnin eru búin að taka þátt í vorskólanum og gekk það mjög vel. Þetta voru skemmtilegir dagar bæði í Vallaskóla sem og Sunnulækjarskóla. Í framhaldi af vorskólanum ætlum við svo að fara í heimsókn í skólana þar sem að við fáum að vera með í kennslustund. Við getum farið og fylgst með smíðatíma, sundtíma eða almennri kennslu, allt eftir því hvað okkur finnst mest spennandi. Einnig munum við heimsækja skólavitun. Ég mun láta foreldra vita af þessum heimsóknum í tæka tíð svo að allir geti verið með

Við erum enn að vinna með virðinguna og krakkarnir eru orðin svakalega klár í að nota þá dyggð. Þau eru t.d. farin að bera meiri virðingu fyrir hvert öðru sem er náttúrulega alveg stórkostlegt

Hreyfining inni er að verða eins og hún á að sér að vera en nú er skráningu í heilsubækur lokið í bili og við getum því farið í hreyfinguna í hópunum okkar eins og við vorum vön.

Við erum einnig farin að æfa leikrit sem við stefnum á að sýna um miðjan maí og því fylgir mikil spenna og gleði

Foreldraviðtölin byrja svo strax á mánudaginn í næstu viku og fá allir foreldrar bréf þess efnis í lok vikunnar.

Með kærri kveðju

Bryndís Ósk

                                                                                                                                                                              



                                                                                                                                                                                             12. mars 2010
Kæru foreldrar,

Vikan okkar hefur verið vel lukkuð. Við erum búin að vinna með virðinguna, erum að leiða inn tákn (tákn með tali), Art hóparnir unnu sína vinnu og elstu börnin fóru í heimsókn í tónlistarskólann þar sem að þau æfðu sig fyrir komandi tónleika. Allir búnir að hafa nóg að gera og haft gaman af. 
Á næstu vikum verður mikið að gera hjá okkur í leikskólanum og því getur daglegt skipulag okkar breyst eitthvað.
Mig langar til að minna ykkur á aukafötin kæru foreldrar. Á þessum tíma er lóðin okkar oft ansi blaut og því mikilvægt að allir séu með aukaföt,
eins og áður hefur komið fram erum við ekki með aukaföt sem leikskólinn á því og verðum við að hringja heim ef aukafötin vantar.

Meira var það ekki í bili, góða helgi allir saman                       
                                                                                                                                                                                                



Kæru foreldrar,

Í janúar og febrúar höfum við verið að vinna með vinsemdina. Við höfum haft umræðuhópa þar sem talað er um vinsemdina, við höfum unnið verkefni sem tengjast vinsemdinni t.d. gerðum við vinabönd, vinatré og teiknuðum og máluðum myndir af vinum og vinsemd, við höfum lesið bækur sem fjalla um vinsemdina og sungið lög sem auðvelt er að tengja við vinsemdina. Þannig hefur vinsemdin verið eins og rauður þráður í gegnum allt starfið okkar.

Síðast en ekki síst höfum við verið að vanda okkur við að sína hvert öðru vinsemd á hverjum degi. Við erum öll mannleg og við verðum aldrei fullkomin en við erum að læra það að við getum tekið framförum og gert betur í dag en í gær.

Í síðustu viku byrjuðum við á því að taka fyrir nýja verkefnið okkar í lífsleikninni sem er virðing. Við förum yfir hvað virðing sé, hvernig við temjum okkur virðingu og hvers vegna við eigum að temja okkur virðingu. Við munum svo hafa virðinguna sem rauða þráðin í gegnum vinnuna okkar næstu vikur ásamt vinsemdinni sem við erum orðin svo klár í.

                                    Virðing felst í að vita
                                    
að ég er dýrmæt/ur 
                                    
að aðrir eru dýrmætir 
                                    
og umhverfið okkar 
                                    
er líka dýrmætt

Anna Þóra sem er búin að vera hjá okkur í vettvangsnámi hefur verið með hóp sem hún hefur lagt fyrir ýmis verkefni og þá aðalega sem tengjast Krummanum. Þetta hefur gengið mjög vel og börnin afar áhugasöm um þennan flotta nágranna okkar.

Nú erum við að fara æfa leikrit inni á Bátatjörn og markmiðið er að halda sýningu fyrir leikskólann sem og foreldra. Ég mun tilkynna það betur þegar að nær dregur.

Með kærri kveðju
Bryndís Ósk
Deildarstjóri